Útkall í metanólverksmiđju

  • Fréttir
  • 30. október 2013

Eldur kom upp í metanólverksmiðju í Svartsengi síðdegis í dag. Grindavíkurvegur var lokaður í stutta stund vegna brunans. Slökkvilið Grindavíkur var kallað út. Eldurinn var hins vegar slökktur á skömmum tíma og urðu engar skemmdir vegna hans.

Það var starfsmaður verksmiðjunnar sem kom auga á lítinn eld við tank verksmiðjunnar. Hann skrúfaði fyrir súrefni og setti öryggiskerfi á stað. Eldurinn slokknaði eftir að búið var að skrúfa fyrir súrefnið og þar með var hættu afstýrt.

Ekkert tjón varð á verksmiðjunni og er hún komin í eðlilegan rekstur á ný. Lögregla rannsakar atvikið að sögn mbl.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál