Opiđ hús í Lćkningalind Bláa Lónsins

  • Fréttir
  • 28. október 2013

Opið hús verður í Bláa Lóninu Lækningalind í tilefni af Alheimsdegi Psoriasis þriðjudaginn 29. október frá kl. 13.00 -20.00. Fulltrúi Psoriasis Samtakanna á Íslandi verður á staðnum frá kl. 13.00 - 16. 00 og veitir upplýsingar um starfsemi samtakanna.

Esther Hjálmarsdóttir, hjúkrunfræðingur Bláa Lónsins, mun veita upplýsingar um Bláa Lóns psoriasis meðferðina. Gestum gefst kostur á að prófa meðferðina sér að kostnaðarlausu.

Einnig verður kynning á Blue Lagoon húðvörum, en þær eru mikilvægur hluti af Bláa Lóns psoriasis meðferðinni.


Læsi á eigin líðan - fyrirlestur og Pílates æfingar
Pílates æfingar undir leiðsögn Bjargeyjar Aðalsteinsdóttur verða í boði kl. 16. 30. Í framhaldi af æfingunum mun Bjargey flytja erindi sem kallast Læsi á eigin líða. Í erindinu mun hún fjalla um það sem við getum gert til að bæta heilsuna og auka vellíðan. Farið verður yfir mikilvægi þess að læra inn á og lesa betur í eigin líðan og þjálfa okkur að bregðast við aðstæðum samkvæmt því.

Hún mun einnig fjalla um mikilvægi þess að þekkja sjálfa sig og þau ólíku hlutverk sem við tökumst á við á degi hverjum. Bjargey mun einnig fjalla um það hvernig við getum aukið hamingjuhórmón í líkamanum sem láta okkur líða betur.

Léttar veitingar verða í boði, segir í tilkynningu frá Bláa lóninu.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál