Kanntu að syngja, dansa, galdra eða býrðu yfir leyndum hæfileikum? :) Þá eru Hæfileikarnir málið fyrir þig. Í verðlaun fyrir einstaklingskeppnina er IPAD og í verðlaun fyrir hópakeppnina er svakaleg skemmtiferð til Reykjavíkur, þar sem m.a. verður farið í GOKART, KEILU, LASERTAG, LEIKHÚS og út að borða ! Keppnin verður haldin í grunnskólanum í Garði 29. nóvember.
Auðunn Blöndal verður kynnir!
Skráning hafin í þinni félagsmiðstöð - bæði á fésbók eða með tölvupósti.
Þekkir þú einhvern/einhverja sem er í 8. - 10. bekk í grunnskólum á Suðurnesjum sem hefur hæfileika? Láttu hann/hana þá vita.
Keppnin er styrkt af Menningarráði Suðurnesja.