Framkvæmdir við viðbyggingu grunnskólans þar sem verður nýtt bókasafn og tónlistarskóli ganga vel. Búið er að steypa upp báðar hæðirnar og verið að byggja nýjan inngang fyrir skólann sem tilbúinn verður um áramót.
í kjallara verða tæknirými og geymslur fyrir grunnskólann, bókasafnið og tónlistarskólann.
Á 1. hæð verður bókasafn. Gert er ráð fyrir að á bókasafninu verði góð vinnuaðstaða fyrir gesti, skrifstofa, gott lestrarherbergi og starfsmannaaðstaða. Á safninu verður verkum Guðbergs Bergssonar gerð góð skil og hægt verður að nálgast öll hans verk á aðgengilegan hátt. Á 2. hæð verður tónlistarskóli. Gert er ráð fyrir að í tónlistarskólanum verði tvær skrifstofur, vinnuaðstaða fyrir kennara, fjórar kennslustofur, hljóðver, ásamt sal sem hægt er að skipta í tvær einingar.
Myndirnar voru teknar í morgun. Verktaki er Grindin hf.