Sjávarréttahlaðborð sunddeildar UMFG verður haldið á Brúnni restaurant, föstudaginn 8. nóvember. Takið kvöldið frá. Sunddeildin hefur fengið til liðs við sig meistarakokka úr Bláa Lóninu sem ætla að töfra fram dýrindis sjávarrétti úr hafinu umhverfis Grindavík. Einnig mun Ingó Veðurguð taka nokkur lög ásamt nokkrum heimamönnum.