Grunnþarfir okkar samkvæmt uppbyggingarstefnunni eru gleði, frelsi, kærleikur, áhrif og öryggi.Í haust hafa nemendur í 4. bekk unnið að verkefni sem tengist grunnþörfunum. Unnið var í samstarfi umsjónarkennara og textílkennara. Hugmyndin var sú að hver og einn nemandi byggi til sitt tákn t.d. hjarta eða stjörnu. Notaður var fjölbreyttur efniviður. Afrakstur þessarar vinnu má sjá á ganginum hjá 4. bekkjunum.