Styrktarkvöld Körfuknattleiksdeildar kvenna í Grindavík, GELLUMESSA, fór fram síðasta föstudagskvöld í Sjólist (Hópsnes). Gellumessan tókst ljómandi vel en messustjóri var séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir.
Á meðal þess sem var á dagskrá var tískusýning á gömlum kjólum frá konum í Grindavík, Margrét söng okkur vel valin lög frá stíðsárunum og Kaleb Joshua sá svo um stuðið allt kvöldið. Hér má sjá nokkrar myndir frá fjörinu sem tókst frábærlega vel.