Þjálfun fínhreyfinga, félagsfærni, ýmiss konar stafavinna og undirbúningur fyrir lestur og stærðfræði eru allt þættir sem skipa stóran sess í kennslu yngri barna. Í 1. H voru nemendur í hringekju. Þá er unnið í hópum í ákveðinn tíma að einu viðfangsefni og svo skipt. Áhuginn leyndi sér ekki og gleðin var við völd.