Grindavík áfram í Útsvari

  • Fréttir
  • 12. október 2013

Grindavíkurbær sigraði lið Vestmannaeyja í spurningakeppni sveitarfélaganna, Útsvari. Lokatölur voru 65-64 en Grindavík tryggði sér sigurinn með því að svara 15 stiga spurningu í blálokin um grísk-rómverska glímu. Rétta svarið var Búlgaría og fagnaði Grindavík sigri.

Bæði lið mættu galvösk í sjónvarpssal Rúv þetta föstudagskvöldið og var keppnin æsispennandi frá upphafi til enda.

Agnar Steinarsson, Ragnheiður G. Eyjólfsdóttir og Siggeir Fannar Ævarsson skipuðu lið Grindavíkur.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir