Í kvöld verður opið svið - októberfest - á Bryggjunni frá kl.21 - 24. Þar kemur Halldór Lárusson trommuleikari í Grindavík fram með Pálma Sigurhjartarsyni píanóleikara og Þorgils Björgvinssyni bassaleikara. Öllum er velkomið að taka þátt!
Það er nóg um að vera hjá Halldóri um helgina.
Á morgun laugardag stendur hann fyrir hinni árlegu sýningu, Trommarinn 2013 sem haldin er að venju í sal FÍH, Rauðagerði 27 í Reykjavík. Þetta er í fimmta sinn sem sýningin er haldin. Hér eru meiri upplýsingar um sýninguna: www.reykjavikdrumshow.weebly.com og https://www.facebook.com/events/155132358027753
Á laugardagskvöld verður sjónvarpað á RÚV frá tónleikunum "Þú Getur!" í Hörpu, en þar kemur Halldór fram m.a. fram með listamönnum á borð við Pál Óskar Hjálmtýsson, Björgvin Halldórss, Helga Björnss og sinni eigin sveit Golu ásamt fleirum.
Ljosmynd: Ragnheiður Arngrímsdóttir www.ragnheidurarngrims.is