Grindavíkurbær auglýsir starf kerfisstjóra Grindavíkurbæjar laust til umsóknar. Helstu verkefni kerfisstjóra:
• Annast daglegan rekstur net-, síma- og tölvukerfis Grindavíkurbæjar.
• Uppsetning á vél-, hug- og jaðarbúnaði.
• Umsjón með tölvum og öðrum vélbúnaði.
• Notendaumsýsla, stofnun og viðhald notenda.
• Eftirlit með hugbúnaði.
• Umsjón og eftirlit með fjárhagskerfum bæjarins.
• Umsjón með afritun og geymslu rafrænna gagna.
• Innkaup og ráðgjöf vegna vél- og hugbúnaðar fyrir stofnanir bæjarins.
• Ábyrgð á að tölvudeild sé innan fjárheimilda hverju sinni.
• Almenn ráðgjöf og aðstoð við starfsmenn bæjarins.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun á sviði upplýsingatækni, svo sem kerfisfræði, kerfisstjórnun eða sambærilegt.
• MCSA, MCSE eða MCITP vottun æskileg. Haldbær reynsla af sambærilegu starfi við rekstur tölvukerfa.
• Góð net- og hugbúnaðarþekking og þekking á vélbúnaði. Góð þekking á helstu stýrikerfum. Þekking á SQL server, Exchange server, Windows o.fl.
Lögð er áhersla á frumkvæði í starfi, skipulagshæfni, sveigjanleika sem og afbragðs þjónustulund, og færni í mannlegum samskiptum.
Kerfisstjóri hefur starfsaðstöðu á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja og þarf umsækjandi að geta hafið störf 1. desember 2013.
Umsóknarfrestur er til og með 25. október nk.
Umsókn skal fylgja ferilskrá með upplýsingum um menntun og starfsferil.
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar merkt „Kerfisstjóri" eða í netfangið jont@grindavik.is .
Nánari upplýsingar um starfið gefur kerfisstjóri Grindavíkurbæjar, í síma 660-7326 eða í tölvupósti: tolvudeildin@grindavik.is