Nýsköpunarţingiđ Fullnýting til framtíđar

  • Fréttir
  • 9. október 2013

Nýsköpunarþing undir yfirskriftinni Fullnýting til framtíðar verður haldið í Andrews leikhúsinu á Ásbrú fimmtudaginn 10. október frá kl. 17:00 - 19:00. Leitað verður svara við því hvernig byggja megi virðisaukandi starfsemi ofan á frumframleiðslu eða grunnþjónustu og skapa þar með fjölbreyttari og betur launuð störf. Styrkleikarnir sem unnið verður með tengjast orku, iðnaði, sjávarfangi og samgöngumiðju. Fjallað verður um þau tækifæri á Reykjanesi sem byggja á styrkleikum svæðisins og áhersla lögð á 3 stoðir: Auðlindagarðinn, Keflavíkurflugvöll og tæknibyltingu í flutningum.

• Kynnt verða skýr dæmi um fullnýtingu í kringum orkuframleiðslu, þar sem hiti, sjór og vatn eru nýtt til frekari framleiðsluþróunar auk raforkuframleiðslu.

• Kynnt verða skýr dæmi um hvernig auka má virði sjávarfangs með fullvinnslu hráefnis sem áður var hluti af úrgangi.

• Kynnt verða skýr dæmi um hvernig hráframleiðsla í iðnaði getur leitt af sér frekari virðisaukningu með framleiðslu á vörum úr hráefninu og þróun virðiskeðjunnar. 

• Þá verður sýnt fram á hvernig úrgangur/útblástur einnar verksmiðju er gerður að mikilvægu hráefni næstu verksmiðju til að breyta „mengun" í vistvæna, virðisaukandi vöru. 

• Farið verður yfir gríðarleg tækifæri í ferðaþjónustu og flutningum og kynntir kostir þess að samgöngufyrirtæki á sjó, landi og í lofti, nýti sér aðstöðu á svæðinu til frekari útfærslu á þjónustu sinni. 
Annar hluti þingsins er Auðlindagarðsdagurinn sem Íslenski Jarðvarmaklasinn og Blái Demanturinn hafa tengt saman við Nýsköpunarþingið. Í anddyri Andrews verða t.d. settir upp básar í tengslum við hann. Þingið og Auðlindagarðsdagurinn er ákaflega metnaðarfullt verkefni sem snýr að uppbyggingu atvinnulífs á Suðurnesjum. Horft er á allan skagann sem eitt atvinnusvæði með óteljandi möguleikum. Aðalatriðið á þessu þingi er að sýna þessar risa stoðir í atvinnulífinu á Reykjanesi; hvernig þær virka saman, hvaða gríðarlegu tækifærum við búum yfir og hvernig við förum að því að nýta þau á réttan hátt fyrir svæðið og landið allt.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir