Líkt og þrjú síðustu ár var Vinnuskólinn starfræktur fyrir ungmenni sem voru að ljúka 8., 9. og 10. bekk grunnskólans auk fyrsta bekkjar framhaldsskólans. Kristján Bjarnason umsjónarmaður grænna og opinna svæða var verkstjóri Vinnuskólans í sumar og er óhætt að segja að starfið hafi verið ótrúlega fjölbreytt og gengið vel. Mikið var unnið að gróðursetningu utan bæjarins en votviðrasamt var í sumar, sem varla hefur ekki farið fram hjá neinum, og setti það nokkuð strik í reikninginn, aðallega í sambandi við málningarvinnu utan dyra.
Fjöldi nemenda í þessum fjórum árgöngum er 176. Alls voru 105 nemendur skráðir til vinnu sem gerir 59,7% hlutfall sem er heldur minna en árið 2012 en þá var hlutfallið 62,6%. Nemendum í árgangi 1998 og 1999 var boðin meiri vinna í lok sumars. Af 25 nemendum voru aðeins þrír sem þáðu meiri vinnu. Ein ástæða fyrir því að ekki voru fleiri sem nýttu sér það tilboð var Codland-vinnuskólinn. Í upphafi voru ráðnir 12 flokksstjórar og í gegnum sumarátaksverkefni Vinnumálastofnunar komu fjórir til viðbótar.
Að sögn Kristjáns gekk starfsemi Vinnu-skólans vel. Mikið ávannst hvað varðar gróðursetningar, viðhald og snyrtingu bæjarins og einnig framkvæmdir utan hans.
Margvísleg verkefni
„Almennt séð geta bæjarbúar verið stoltir af sínum Vinnuskóla og áberandi var núna hversu hópur flokksstjóranna var samstilltur og hversu góður mórall var á meðal þeirra. Þetta skilaði sér áfram í sumar enda eru flokksstjórarnir fyrirmyndir unglinganna" segir Kristján.
Verkefni voru með hefðbundnu sniði eins og sláttur, hirðing, hreinsun, gróðursetning og margt fleira.
En Vinnuskólinn sinnir einnig ýmsum fleiri verkefnum sem eru fyrir utan byggðina sjálfa. Mikið var t.d. unnið í Selskógi í sumar við gróðursetningu, ruslahirðingu, flutning á trjábolum sem fóru í kurlun, lagfæringar á stíg ofl., og var þetta unnið í samstarfi við Skógræktarfélag Grindavíkur.
Þá voru gróðursett tré í Hópsheiði sem er nýframkvæmd, líka í samstarfi við Skógræktarfélagið. Ætlunin er að rækta skjólbelti norðaustan við byggðina sem með tíð og tíma mun bæði skýla íbúum fyrir vindum og ónæði af Suðurstrandaveginum, sem verður færður úr bænum upp í heiðina á næstu árum.
Austan undir Lágafelli var framhald á uppgræðslustarfi í aflagðri námu í samstarfi við landgræðslusamtökin Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs. Allt hey úr görðum og opnum svæðum fór þangað og var því dreift á illa farin svæði þar sem ný gróðurþekja tekur að myndast. Landgræðslustarfið í Lágafelli og skógræktin í Hópsheiði er að sögn Kristjáns í takti við það sem gert er um allt land; sem sagt þátt-ur í góðri nýtingu lífræns úrgangs, bindingu koltvísýrings og uppbyggingu jarðvegs.
Boðið var upp á garðslátt fyrir eldri borgara í sumar og voru slegnar 40 lóðir á móti 81 árið á undan. Slættir voru 60. Á tjaldsvæðinu voru gróðursettar harðgerar víðiplöntur með það í huga að ná upp háum skjólbeltum og sömuleiðis við leikskólann Krók. Sólarvé voru tekin í gegn, reyndar að mestu áður en Vinnuskólinn hófst, en einnig var þar tyrfing og stöðugt ýmislegt viðhald allt sumarið.
Á meðal annarra verkefna sumarsins má nefna:
- Ruslahirðing úr ruslakössum og tunnum innan bæjar og utan, tvisvar í viku og oftar sumstaðar. Víkurbraut og miðbær yfirleitt yfirfarin daglega og götur bæjarins á mánudagsmorgnum.
- Götur, stéttar,leikvellir: Ruslahirðing, goggun, sópun og jafnað undir leiktækjum.
- Sláttur garða, opinna svæða og stofnanalóða.
-Trjáklippingar og áburðargjöf, hreinsun trjá-beða og kantskurður, þökulögn.
- Gróðursetning sumarblóma og umhirða.
- Málningarvinna var lítil vegna ótíðar. Þó tókst að mála töluvert þá fáu daga sem þornaði á strái, svo sem palla, girðingar og leiktæki í Laut, Króki, Grunnskóla,Hópsskóla, tjaldsvæði og Þjónustumiðstöð.
- Margskonar flutningar og tilfallandi tiltekt, þrif og aðstoð í Þjónustumiðstöð, Hópsskóla, Kvikunni, Gunnuhver og víðar.
- Hreinsun á niðurföllum og skráning á stíflum í götum bæjarins.
- Aðstoð í Víðihlíð.
- Tilfallandi aðstoð á leikjanámskeiðum.
- Aðstoð við hjólreiðakeppni.
- Undirbúningur fyrir Sjóarann síkáta og 17. júní.
- Hreinsun á jarðvegstipp.
Að sögn Kristjáns er listinn ekki tæmandi og vissulega megi gera meira innanbæjar. Þar bíða ýmis verkefni sem þarf að skoða betur og forgangsraða með tilliti til fjárveitinga og starfsmannafjölda og hvað hann getur tekist á við.
„Niðurstaðan er sú að Vinnuskólinn vann hin þörfustu verk, innan bæjar sem utan. Verkefnið fyrir næsta sumar er svo eðlilega að reyna hvað hægt er að auka skilvirknina, sem dæmi að þekja og loka sumum beðum sem eru mjög vinnukrefjandi, eða gróðursetja þar aðrar plöntur. Síðan er verið að ræða mögulegar og spennandi nýframkvæmdir þessa dagana í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014", segir Kristján.
Í lok sumars var haldinn fundur með flokksstjórum þar sem farið var yfir sumarið og hvað betur mætti fara.