Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi reglur um afslátt á fasteignagjöldum tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega. Reglurnar má sjá hér.
Á meðal þess sem kemur fram í reglunum varðandi rétt til afsláttar, að umsækjandi þarf að hafa lögheimili í húsnæðinu og búa þar sjálfur og íbúðarhúsnæðið skal vera staðsett á íbúðarsvæði skv. skipulagi. Heimilt er að víkja frá skilyrði um búsetu þegar viðkomandi dvelur á stofnun, á því ári sem viðkomandi fer á stofnun og næsta ár þar á eftir, enda hafi viðkomandi ekki leigutekjur af húsnæðinu, eða húsnæðið er ekki nýtt af öðrum.
Þá kemur einnig fram í reglugerðinni að falli annar aðilinn frá þá á sá eftirlifandi rétt á því að njóta afsláttar hjóna, eða sambúðaraðila, út næsta ár eftir að fráfallið átti sér stað óski hann þess.