Uppeldi sem virkar - Fćrni til framtíđar - Námskeiđ hefst 16. okt.

  • Fréttir
  • 23. september 2013

Foreldrafærninámskeiðið UPPELDI SEM VIRKAR - FÆRNI TIL FRAMTÍÐAR mun hefjast að nýju þann 16. október og verður haldið í leikskólanum Laut. Námskeiðið verður á miðvikudögum kl. 17:00 - 19:00 í fjögur skipti.

Leiðbeinendur: Ragnhildur Birna Hauksdóttir, leikskólaráðgjafi/fjölskyldumeðferðarfræðingur og Sigríður Gerða Guðlaugsdóttir, leikskólakennari og deildarstjóri á Króki.

Skráning og frekari upplýsingar má nálgast í síma 420 1116 eða með því að senda tölvupóst á ragnhildur@grindavik.is 

Við skráningu þarf að koma fram nafn, kennitala, sími og netfang forsjáraðila, kennitala barns og velja þarf námskeiðstíma. Námskeiðið gagnast best ef báðir foreldrar mæta. 

Þátttökugjald er kr. 2000 fyrir einstaklinga og 3000 fyrir par. Innifalin eru námskeiðsgögn og Uppeldisbókin.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir