Allt í kringum okkur byggist á formum. Hringur, ferningar, þríhyrningar og önnur form eru í umhverfinu. Í teikningu skipta þessi form miklu máli. Pálmar Guðmundsson lét nemendur sína í 3. bekk í myndmennt æfa sig með grunnformin og voru rökkubbar m.a. nýttir til þeirrar vinnu. Stærðfræði og myndmennt eiga mikið sameiginlegt og gaman að tengja þær greinar saman.
Gott er að vekja athygli barna á formum í kringum okkur eins og þökum á húsum, gluggum og fleiru. Þá má til að mynda spá í hvasst og gleitt horn, hvað er rétt horn og þess háttar. Einnig má gera sér að leik innanhúss að telja hve margir hlutir eru: hringlaga, þríhyrndir, ferhyrndir og svo framvegis. Þátttaka heimila skiptir miklu í að örva skyndjun barnanna. Oft má skemmta sér á leið í bíl við að spá eitt og annað á þessum nótum. Í Kennslustundinni hjá Pálmari mátti sjá niðursokkna og einbeitta nemendur.