Haraldur Hjálmarsson áhugaljósmyndari, sjómaður og golfari tók þessa frábæru mynd af kirkjugarðinum á Stað sem er staðsettur rétt vestan við Grindavík og liggur að sjó. Eins og sjá má er tvöfaldur regnbogi yfir kirkjugarðinum.
Undanfarin ár hefur ötullega verið unnið að stækkun og fegrun bæði garðs og umhverfis. Gamli og nýi garðurinn tengjast saman með litlu torgi þar sem tvær styttur eru staðsettar. Önnur af Sr. Oddi V. Gíslasyni og hin er minnisvarði um horfna sjómenn.