Í ár tekur Ísland þátt í sjöunda skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst 4. sept og stendur til 2.október. Skólinn okkar er þátttakandi í þessu góða málefni. Lögð er áhersla á að börn gangi eða hjóli til og frá skóla. Markmið verkefnisins er að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Hvatning foreldra og forráðamanna barnanna skiptir miklu máli og margt skemmtilegt er gert í skólanum til að hafa áhrif og örva börnin til þátttöku. Í 3. M gera börnin á hverjum degi súlurit yfir það hvaða ferðamáta þeir nýta sér til að koma í skólann. Með þeim hætti tvinnar kennari barnanna stærðfræði inn í daglegt líf.
Margir hafa komið með bíl en þeim fer fækkandi eins og sjá má á mynd. G eru þeir sem koma gangandi (blár litur) , H eru þeir sem hjóla (grænn litur) og svo er B fyrir bíl (svartur litur) . Greinilegur árangur var mælanlegur frá fyrsta degi sem mælingar voru gerðar og svo nokkrum dögum síðar. Þeim hafði greinilega fækkað sem kusu bílinn! Vegalengd frá heimili til skóla er mislöng. Sumir krakkar hafa ákveðið að sitja í bíl með mömmu og pabba að hluta til t.d. upp í sundlaug og ganga svo þaðan. Það er góð lausn. Svo má alltaf lengja leiðina smátt og smátt.