Fyrir fáeinum árum blés umhverfisráðuneytið til sóknar fyrir íslenska náttúru og tilnefndi 16. september sem Dag íslenskrar náttúru. Markmiðið er að minna á hvers virði náttúran er okkur Íslendingum og að við þurfum ætíð að standa vörð og vernda hana.
Í mynd- og textílmennt á miðstigi, hafa nemendur unnið listaverk í fjörunni í haust í tilefni af Degi íslenskrar náttúru. Farið hefur verið niður í Bót eins og hún kallast svona dagsdaglega og þar hefur mátt finna alls kyns efnivið til listsköpunar.
Á vef Umhverfisráðuneytisins segir: Fátt hefur mótað íslenska þjóð eins og náttúran. Íslendingar hafa aðlagað líf sitt samspili elds og ísa, dyntóttum veðurguðum og kröftugum sjávarföllum um leið og þeir hafa notið alltumlykjandi náttúrufegurðar og haft lífsviðurværi sitt af ríkulegum gjöfum íslenskrar foldar.
Flestir nemendur hafa verið mjög áhugasamir og fundið sig vel í fjöruferðunum. Margt spennandi bar fyrir augu og alls kyns gersemi fannst þegar farið var að skoða. Voru þar krabbar mjög vinsælir og ígulker, glerbrot og alls konar kuðungar og þari.
Á myndunum hérna má sjá sýnishorn af því hvaða listaverk urðu til úr þeim efnivið sem fyrirfinnst í fjörunni s.s. þara, þangi, rekavið, kuðungum, kröbbum og fleiru. Það leynir sér ekki að fjaran er kjörin staður fyrir útikennslu. Listaverkin eru eðli málsins ekki langlíf þar sem náttúran á þessum slóðum tekur völdin með flóði og fjöru, hvössum vindi og regni.