Uppskeruhátíð eftir sumarlesturinn, var haldin 9.september, s.l. á sjálfan Bókasafnsdaginn.
30 krakkar skiluðu inn lesnum bókum – frá einni bók og upp í tíu. Margir lásu miklu fleiri bækur og bættu fjölda laufa á baunagras risans frammi á ganginum – sem var orðið afar vel laufgað í lokin. Krakkarnir fengu viðurkenningarspjald fyrir þátttökuna og litríkt bókamerki í tilefni af Bókasafnsdeginum. Nöfn þátttakenda fóru í pott og voru dregin út þrjú nöfn: Diljá Ösp Þorbergsdóttir, Ásdís Hildur Gísladóttir og Ásta Sigríður Gísladóttir, fengu allar bækur í vinning.
Þeir sem ekki komust á uppskeruhátíðina geta náð í viðurkenningarspjöldin sín og vinninga til okkar á bókasafnið.
Á Bókasafnsdaginn gerðu starfsfólk og gestir sér dagamun á bókasöfnum landsins – var m.a. boðið upp á hressingu og fallegt bókamerki hjá okkur. Þá var líka gefinn út listi yfir 100 vinsælustu handbækurnar… áður voru komnir listar yfir 100 bækur sem þú verður að lesa og svo 100 bestu barna- og unglingabækurnar. Hægt er að nálgast þessa lista á bókasafninu.
Meðfylgjandi er mynd af nokkrum þátttakendum undir baunagrasinu.