Í dag miðvikudaginn 11. september nk. munu starfsfólk sérfræðiþjónustu á skólaskrifstofu Grindavíkurbæjar efna til fundar með foreldrum nemenda í Grunnskóla Grindavíkur. Fundurinn fer fram í sal skólans við Ásabraut og hefst hann kl. 17:00 en er áætlað að honum ljúki um kl. 18:30. Dagskrá:
1. Hlutverk og framkvæmd sérfræðiþjónustu sveitarfélagsins
2. Kynning á helstu niðurstöðum viðhorfskönnunar nemenda og foreldra - Skólapúlsinn
Vonast er til þess að sem flestir foreldrar sjái sér fært að mæta.