María Ben til Grindavíkur

  • Íţróttafréttir
  • 11. september 2013

Keflvíkingurinn María Ben Erlingsdóttir mun á komandi tímabili spila með Grindvíkingum en í gær var skrifað undir samning þess eðlis. Miðherjinn María er uppalin í yngri flokkum Keflavíkur en hún lék síðast með Valsstúlkum í efstu deild á Íslandi árið 2011. Í fyrra lék hún í Frakklandi.

Grindvíkingar eru aldeilis búnir að styrkja sig en Pálína Gunnlaugsdóttir gekk einnig til liðs við þær gulklæddu í sumar. Pálína hefur undanfarin ár verið að öðrum ólöstuðum besti íslenski leikmaður deildarinnar.

Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari Grindvíkinga kvaðst í samtali við Karfan.is vera sáttur með að María væri komin í liðið og sagði að hópur hans væri nú klár í veturinn. „María er þekkt stærð í þessari deild og öflugur leikmaður. Við auðvitað búumst við miklu af henni í vetur líkt og frá öllum öðrum leikmönnum okkar. Við spilum á morgun við Keflavík en það er óvíst hvort hún verði samt með í þeim leik." sagði Jón Halldór í viðtali við Karfan.is.

Mynd: María Ben ásamt hluta af kvennaráði körfuknattleiksdeildarinnar.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir