Framkvæmdir við nýjan tónlistarskóla og bókasafn við Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut ganga samkvæmt áætlun. Búið er að steypa upp fyrstu hæðina. Þá er búið að rífa gamla anddyrið eins og sést á meðfylgjandi mynd. Aðalinngangurinn verður lokaður til áramóta.
Allir sem eiga erindi í skólann eiga að nota inngang miðstigs við Ásabraut og inngang fyrir miðri norðurhlið.
Fyrsta skóflustunga var tekin 5. júní. Búið er að steypa upp kjallarann og morgun verður 1. hæðin steypt. Heildarkostnaður framkvæmda er áætlaður um 350 milljónir króna. Verktaki er Grindin í Grindavík.