Sameiginlegur starfsmannadagur Grindavíkurbæjar verður fimmtudaginn 12. september næstkomandi. Staðsetning og dagskrá verður tilkynnt síðar. Þetta er í þriðja skipti sem þetta er gert en vel hefur tekist til fram að þessu og starfsfólk ánægt, eins og kom fram í könnun í kjölfar Starfsmannadagsins 2012.
Starfsmannadagurinn er tækifæri fyrir alla starfsmenn til að koma saman og hafa áhrif á starfsumhverfi sitt.
Uppleggið er svipað og áður en þema fundarins að þessu sinni erumannauðsmál og munum við m.a. ræða um starfsmannastefnu og siðareglur starfsmanna.
Dagurinn er á vinnudegi og ætlast til að allir mæti. Ekki er greidd yfirvinna þó starfsmaður sé í hlutastarfi. Að þessu sinni fer starfsmannadagurinn fram á fimmtudegi í samræmi við niðurstöðu könnunar meðal starfsmanna.
Boðið er upp á veitingar og fræðslu sem munu vonandi, ásamt tækifærinu til að hafa áhrif, vera nóg til þess að
allir mæti og taki þátt af fullum krafti.
Skráning hefst mánudaginn 2. september og lýkur föstudaginn 6. september en skráningin er mikilvæg til að fá á hreint fjölda í mat og til að raða þátttakendum niður á borð.