Fjölbreytt dansnámskeiđ
Dansskólinn Grindavík verður með fjölbreytt námskeið í Kvennó í vetur. Kennarar eru Harpa Pálsdóttir og Erla Rut Haraldsdóttir. Innritun og upplýsingar í síma 866 2640 og 866 2494. Innritun er 3.-13. sept. milli kl. 19-21. Hér má sjá úrval námskeiða fyrir alla aldurshópa:
- Skemmtileg hjóna- og paranámskeið. Byrjendur og framhald.
- Krakkar - Blandað dansnámskeið fyrir ykkur
- Freestyle fyrir 16 ára og eldri.
- Freestyle. Aldursskipt. Yngst 9 ára.
- Konusalsa. Sjóðheitt námskeið fyrir allar konur.
- Börn 4-6 ára.
- Nýtt: Dansrækt með Jeanette. Dansaðu þig í form, bráðfjörugir tímar með súmba ívafi, 1x í viku í 10 vikur.