Framkvæmdir við nýjan tónlistarskóla og bókasafn við Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut genga vel. Fyrsta skóflustunga var tekin 5. júní. Búið er að steypa upp kjallarann og morgun verður 1. hæðin steypt. Heildarkostnaður framkvæmda er áætlaður um 350 milljónir króna. Verktaki er Grindin í Grindavík.
Það hefur aðeins tafið verkið hversu seinlega gekk að brjóta klöppina fyrir kjallarann. En annað hefur gengið samkvæmt áætlun og er vonast til þess að nemendur geti gengið inn um aðalinng skólans að nýju í janúar.
Bæjarstjórn Grindavíkur ákvað að sameina almennings- og skólabókasafn í nýju húsnæði við grunnskólann. Jafnframt verður nýtt húsnæði tónlistarskólans í sömu byggingu.
Markmið sameiningarinnar er að hagræða í rekstri og bæta þjónustu bókasafns fyrir skóla og almenning. Bæjarstjórn hefur jafnframt ákveðið að flytja starfsemi Tónlistarskóla Grindavíkur í nýtt húsnæði sem fyrirhugað er að byggja við Grunnskóla Grindavíkur. Markmið þeirrar breytingar er að auka samstarf skólanna enn frekar, efla samfellu í námi nemenda í grunn- og tónlistarskóla og stuðla að aukinni grósku í menningarlífi Grindvíkinga. Þegar þessu verkefni er lokið verður til rými í skólanum sem mun nýtast undir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar. Þegar öll þessi starfsemi; grunnskóli, tónlistarskóli, bókasafn og félagsmiðstöð, er komin undir sama þak skapast miklir möguleikar í eflingu á menningartengdri starfsemi fyrir allar kynslóðir samfélagsins og húsnæðið mun verða suðupottur lærdóms, tómstunda og menningar öllum til heilla.