Heimsóttu Narsarsuaq á Grćnlandi

  • Fréttir
  • 25. ágúst 2013

Grindvísku þingmennirnir Páll Valur Björnsson og Páll Jóhann Pálsson sitja báðir í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins. Þeir dvöldu í liðinni viku í Narsarsuaq á Grænlandi þar sem ársfundur ráðsins fór fram.

Markmið ráðsins er að starfa að hagsmunum Vestur-Norðurlanda, gæta auðlinda og menningar Norður-Atlantshafssvæðisins, fylgja eftir samvinnu ríkisstjórna og landsstjórna Vestur-Norðurlanda, auka samstarfið innan norrænnar samvinnu og vera þingræðislegur tengiliður milli samvinnuaðila innan Vestur-Norðurlanda og annarra fjölþjóðlegra hagsmunahópa og ríkjasamtaka. Vestnorræna ráðið hefur ályktað um ýmis mál, þar á meðal umhverfis- og auðlindamál, aukið menningarsamstarf landanna og skóla- og íþróttasamvinnu, svo að fátt eitt sé nefnt. Ályktanir Vestnorræna ráðsins eru lagðar fram á Alþingi í formi þingsályktunartillagna.

„Þetta var mjög góð ferð og leiddi enn betur í ljós hvað þetta samstarf okkar við Grænlendinga og Færeyinga er gríðarlega mikilvægt og ekki síst í ljósi breyttrar heimsmyndar. Augu alheimsins hafa í síauknum mæli beinst að þessum heimshluta og ekki síst vegna þeirra miklu auðlinda sem eru á þessum slóðum. Frændþjóðir okkar hér í norðvestrinu leggja mikla áherslu á við styrkjum þetta samstarf enn frekar og telja að með mikilli samstöðu um málefni svæðisins stöndum við sterkari gagnvart þeim stórþjóðum sem renna hýru auga til þessara auðlinda og nýtingar á þeim. Einnig fór fram sameiginleg þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins, Norðurlandaráðs, Stortinget í Noregi og Folketinget í Danmörku þar sem rætt var um auðlindir á vestnorrænum slóðum og nýtingu þeirra," sagði Páll Valur við grindavik.is.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir