Grindvíkingar hafa verið duglegastir Suðurnesjamanna í bólfimi að undanförnu, sé tekið mið af fæðingum barna á síðasta ári, og hrekja Vogamenn úr efsta sætinu.
Alls fæddust 56 grindvísk börn á síðasta ári sem er met miðað við tölur frá Hagstofu Íslands sem ná aftur til 1991.
Undanfarin 10 ár hefur þróunin verið þessi:
1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008
Grindavíkurbær 45 43 30 43 36 46 47 39 43 56
Árið 2008 fæddust 4.835 börn hérlendis, 2.470 drengir og 2.365 stúlkur. Það eru 275 fleiri börn en ári áður, en þá fæddust hér 4.560 börn. Aðeins tvisvar í sögu Íslands hafa fleiri lifandi fædd börn komið í heiminn á einu ári, árin 1960 og 1959. Árið 1960 fæddust 4.916 börn og árið 1959 fæddust 4.837.