Kvennalið Grindavíkur fer í langt ferðalag í dag og mætir Völsungi á Húsavík í lokaumferð B-riðils 1. deildar kvenna. Grindavík er í öðru sæti riðilsins en Völsungur í því fimmta. Grindavík hefur þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum en engu að síður skiptir miklu máli hvort Grindavík lendir í fyrsta eða öðru sæti riðilsins.
Ástæða er sú að Fylkir virðist vera yfirburða lið í A-riðlinum og í 1. deildinni og ef Grindavík lendir í öðru sæti B-riðils mætast Grindavík og Fylkir í undanúrslitum þar sem barist er um sæti í Pepsideildinni. Ef Grindavík vinnur riðilinn lenda okkar stelpur hins vegar gegn ÍA sem er í öðru sæti A-riðils og þá aukast möguleikar Grindavíkurstúlkna en Skagastelpur eru einnig með hörku flott lið.
KR er í efsta sæti B-riðils og tekur á móti Fjölni í kvöld en Fjölnir er í þriðja sæti riðilsins. Grindavík verður því að vinna sinn leik en treysta á að KR misstígi sig gegn Fjölni.