Hluti af þróunarverkefni á vegum skólaskrifstofu felst í endurskoðun skólastefnu Grindavíkurbæjar. Í áætlun verkefnisins var gert ráð fyrir að grunnurinn að endurskoðun fælist í vinnu með sex grunnþætti menntunar meðal starfsfólks allra skóla á starfsdögum og íbúa Grindavíkur á málþingi. Afrakstur málþingsins, þ.e. hugmyndir og skoðanir þátttakenda, er að finna á heimsíðu Grindavíkur undir hnappnum skólastefna.
Þær niðurstöður höfðu áhrif á endurskoðun skólastefnu Grindavíkur þó margt eigi líklega enn eftir að útfæra nánar í einstökum skólum.
Á vordögum var skipaður vinnuhópur til að endurskoða gildandi skólastefnu Grindavíkur og skilaði hópurinn drögum til fræðslunefndar fyrir fund í júní. Fræðslunefnd bókaði ánægju með drögin og fól hópnum að kalla eftir umsögnum frá hagsmunaaðilum skólasamfélagsins og öllum þeim sem láta sig málið varða, vinna úr þeim og leggja lokadrög fyrir nefndina. Af því tilefni eru drög skólastefnunnar nú aðgengileg á heimasíðu Grindavíkurbæjar svo allir geti kynnt sér þau og komið með umsagnir áður en lokadrög verða útbúin og lögð fyrir fræðslunefnd. Allar umsagnir verða teknar saman og lagðar fyrir fræðslunefnd óháð því hvort þær rata inn í lokadrög vinnuhópsins eða ekki.
Óskað er eftir að umsagnir um drög að skólastefnu Grindavíkurbæjar verði sendar á netfangið ingamaria@grindavik.is fyrir 2. september 2013.
Drög að endurskoðaðri skólastefnu
Samantekt á hópastarfi frá málþingi