Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja hefur verið í undirbúningi undanfarin misseri og nú styttist í að framkvæmdir hefjist. Kynningarmyndband um uppbygginguna má sjá hér. Bæjarráð hefur að loknu forvali samþykkt að fjögur fyrirtæki verði heimilað að taka þátt í útboðinu.
Þau eru: ÍAV hf., Jáverk ehf., Grindin ehf. og H.H. Smíði ehf.
Bæði meiri- og minnihluti lögðu fram bókanir í bæjarráði við afgreiðslu málsins sem lesa má hér í fundargerð.