Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Sótt er um á vef NATA á rafrænum eyðublöðum sem þar eru og er umsóknarfrestur til 27. ágúst.
Styrkir til tvenns konar verkefna
Í samræmi við það sem samningur landanna kveður á um er hægt að sækja um styrki til tvennskonar verkefna. Annars vegar verkefna í ferðaþjónustu og hins vegar ferðastyrki, t.d. vegna skólahópa, íþróttahópa eða menningarverkefna.
Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu
Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu á milli landanna þriggja geta sótt um styrk að hámarki 100.000 danskar krónur, eða að hámarki 50% þeirra kostnaðarliða sem styrktir eru. Skulu umsóknir fela í sér samstarf milli einstaklinga, stofnana eða fyrirtækja í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. Ekki eru veittir styrkir vegna launakostnaðar, ráðgjafar, útgáfu efnis eða vefsíðugerðar.
Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum ferðaþjónustu.
Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi þátta:
Styrkir vegna kynnis- og námsferða
Eitt af markmiðum samstarfssamnings um ferðamál á milli Íslands, Grænlands og Færeyja er að auka samskipti og fjölga heimsóknum á milli landanna þriggja. Hér með eru auglýstir ferðastyrkir til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Styrkjunum er einvörðungu ætlað að standa straum af ferðakostnaði, ekki gistingu eða uppihaldi. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er 1.000 danskar krónur vegna ferðalaga milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Færeyja hins vegar.
Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:
Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi atriða: