Kristín María hleypur fyrir Dýrahjálp Íslands

  • Fréttir
  • 12. ágúst 2013

Kristín María Birgisdóttir bæjarfulltrúi ætlar að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu. Hún ætlar að hlaupa fyrir Dýrahjálp Íslands og ef hún nær söfnunarmarkiði sínu, sem er 50 þúsund krónur, ætlar hún að hlaupa í kisubúningi. Kristín María hefur safnað 7.000 kr. en markmið hennar er 50 þúsund.

,,Dýravernd er mér hugleikin og Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leggur sig fram við að finna dýrum sem eru heimilislaus, ný heimili og leitast við að tryggja þeim skjól og athvarf þangað til. Varnarlausir málleysingjar eiga skilið að vel sé hugsað um þá og þess vegna hleyp ég fyrir Dýrahjálp Íslands. Ef söfnunarmarkmið næst verður hlaupið í kisubúningi," segir Kristín María á heimasíðu Reykjavíkurmaraþonsins.

Sjá nánar hér á heimasíðu hlaupsins.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!