Dreifinám Menntastoða er nám í 10 mánuði og verður kennt frá klukkan 15:00 til 20:30 einn virkan dag og frá 09:00 til 16:30 tvo laugardaga í mánuði. Námið er með fjarnámssniði, þ.e.a.s. heimaverkefni og tímaverkefni verða leyst í fjarnámi en nemendur mæta í skólann til að fá innlögn frá kennurum einu sinni í viku.
Markmið Menntastoða er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni. Í náminu er lögð áhersla á að nemendur læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námið í Menntastoðum tekur um 6 mánuði (staðnám) eða 10 mánuði (dreifinám) og gefur um 50 einingar. Munurinn á staðnámi og dreifinámi felst í því að staðnámið er dagskóli fimm daga vikunnar en dreifinámið er kvöld/helgarskóli með fjarnámssniði
Kennsla er eingöngu á miðvikudögum frá 15:00-20:30 og annan hvern laugardag frá 09:00-16:30
Helstu námsgreinar eru:
Stærðfræði 200 kst
Íslenska 130 kst
Enska 130 kst
Danska 50 kst
Námstækni 60 kst
Bókfærsla 50 kst
Upplýsingatækni 40 kst
Næstu skref:
Að loknum Menntastoðum getur þú sótt um:
• Háskólabrú Keilis
• Háskólagátt á Bifröst
• Frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík
• Iðnnám í framhaldsskóla/Tækniskólanum/Iðnskólanum
Nám í Háskólabrú er lánshæft hjá LÍN, gegn ákveðnum skilyrðum ( sjá nánar á www.lin.is).
Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að framhaldsskólar megi meta námið til eininga. Fjölbrautaskóli Suðurnesja metur Menntastoðir til 32 eininga.
Staður: Vikurbraut 56 Grindavík
Nánari upplýsingar veitir Eydna í síma 412-5966 eða á eydna@mss.is