Það verður opið svið á Bryggjunni í kvöld 26.júlí.
Halldór Lárusson trommuleikari og tónlistarkennari við tónlistarskólann í Grindavík sem hafði frumkvæði að þessum viðburði á Bryggjunni.
Þetta opna svið hefur verið á hverjum föstudegi í júlí og tekist með eindæmum vel. Það er margt hæfileikafólk í Grindavík sem hefur stigið á svið með Halldóri og félögum.
Þeir sem koma fram með Halldóri í kvöld eru Þorgils Björgvinsson úr Sniglabandinu og Sigmar Þór Matthíasson úr hljómsveit sem kallar sig "Hvar er Mjallhvít"
Það eru allir velkmonir á Bryggjuna meðan húsrúm leyfir.