Fjórða leikjanámskeiðið sumarsins byrjar mánudaginn 22.júlí. Verður margt skemmtilegt í boði eins og á fyrri námskeiðum. Skráning í námskeiðið fer fram á bæjarskrifstofunni. Vakin er athygli á því að námskeiðið er aðeins í níu daga og lýkur því fimmtudaginn 1. ágúst. Dagskrá námskeiðsins má sjá hér.
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn á aldrinum 6-12 ára (fædd 2007 og fyrr) þar sem viðfangsefnin eru skemmtileg og uppbyggjandi. Mikið er lagt upp úr útiveru. Þátttakendur eiga að hafa með sér hollt og gott nesti og í samræmi við lengd viðveru.
Það er ekki leyfilegt að senda barn með gos og sælgæti í nesti. Nauðsynlegt er að vera í góðum skóm. Réttur útbúnaður stuðlar að aukinni vellíðan. Gott er að vera með regnfatnað og aukaföt í tösku. Dagskrá hvers námskeiðs er fjölbreytt. Það verður föndrað, sungið, leikið, farið í heimsóknir, spilað, farið í dagsferð, sundferð og margt fleira. Engin tvö námskeið eru eins. Hvert námskeið stendur yfir í tvær vikur.
Námskeið 4: 22. júlí - 1. ágúst
Miðað er við að börnin séu í virkri dagskrá frá kl. 09:00 - 16:00. Hægt er að kaupa gæslu frá kl. 08:00 - 09:00 og frá kl. 16:00 - 17:00.
Hægt er að velja um mismunandi dvalartíma en gengið út frá því að hann sé sami allt það námskeið sem er valið:
Frá kl. 08:00 - 12:00 Frá kl. 08:00 - 16:00 Frá kl. 08:00 - 17:00
Frá kl. 09:00 - 12:00 Frá kl. 09:00 - 16:00 Frá kl. 09:00 - 17:00
Frá kl. 13:00 - 16:00 Frá kl. 13:00 - 17:00
Vakin er athygli á því að á hverju námskeiði verður farin ein dagsferð og þá þarf taka tillit til þess.
Leikjanámskeiðin munu hafa aðsetur í skólaseli Hópsskóla.
Gjaldskrá:
Námskeið 4 - níu virkir dagar:
Verð fyrir 7 klst. pr. dag: Frá kl. 09:00-16:00 - 9.000 kr.
Verð fyrir 3 klst. pr. dag: Frá kl. 09:00 - 12:00 eða frá kl. 13:00 - 16:00 - 5.800 kr.
Verð fyrir viðbótarstund í 9 daga kl. 08:00-09:00 - 1.800 kr.
Verð fyrir viðbótarstund í 9 daga kl. 16:00-17:00 - 1.800 kr.
Vinsamlegast athugið að ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið, en hefur ekki tilkynnt forföll með formlegum hætti til umsjónamanns námskeiðsins á miðvikudegi fyrir upphaf námskeiðs þá mun námskeiðsgjald vera innheimt að fullu.
Tekið er við skráningum á bæjarskrifstofunni.
Yfirumsjón með leikjanámskeiðunum hefur Kristinn J. Reimarsson sviðssjóri frístunda- og menningarsviðs. Leiðbeinendur verða: Berglind Magnúsdóttir og Alma Garðarsdóttir. Aðstoðarleiðbeinendur ef með þarf verða nemendur úr vinnuskólanum.
Dagskráin er birt með fyrirvara um veður eða annarra aðstæðna sem upp kunna að koma.
Búið er að stofna facebook-síðu www.facebook.com/leikjanámskeið og verða tilkynningar til foreldra birtar á þeirri síðu.