Klúbbmeistarar GG

  • Íţróttafréttir
  • 15. júlí 2013

Davíð Arthur Friðriksson og Gerða Kristín Hammer sigruðu meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur sem fór fram um helgina.

Davíð hafði betur gegn Helga Dan Steinssyni í umspili um sigurinn en þeir léku báðir samtals á 293 höggum eða 13 höggum yfir pari. Leiknar voru þrjá holur í umspilinu og hafði Davíð Arthur betur með fugli á þriðju holu í umspilinu. Hávarður Gunnarsson hafnaði í þriðja sæti á 299 höggum.

Um 55 kylfingar tóku þátt í mótinu. Rigning setti sinn svip á mótið en það ringdi vel á fyrsta og lokakeppnisdegi. Þrátt fyrir það var frábær stemmning meðal kylfinga GG og margir kylfingar að leika gott golf.

Í fyrsta flokki sigraði Lárus Guðmundsson með nokkrum yfirburðum. Í öðrum flokki sigraði Halldór Einir Smárason. Í þriðja flokki sigraði Óli Björn Björgvinsson. Í fjórða flokki sigraði Daníel Guðni Guðmundsson og í eldri flokki 55 ára og eldri sigraði Bjarni Andrésson. Hlutskörpust kvenna varð Gerða Kristín Hammer en hún og Þuríður tóku þátt í 3. flokki sem var opinn báðum kynjum þar sem einungis tvær konur voru þátttkendur í meistaramótinu að þessu sinni.

Lokastaða efstu kylfinga í mfl. karla:
1. Davíð Arthur Friðriksson, GG 76-71-74-72=293 +13
2. Helgi Dan Steinsson, GG 75-70 -74-74=293 +13
3. Hávarður Gunnarsson, GG 80-75-74-70=299  +19
4.-6. Kristinn Sörensen, GG 78-72-75-76=301 +21
4.-6. Fannar Jónsson, GG 76-80-71-74=301 +21
4.-6. Jón Júlíus Karlsson, GG 71-75-78-77=301 +21

Mynd að ofan vf.is en þar má sjá fleiri myndir frá lokahófinu


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir