Áhugavert nám í Fisktćkniskólanum - Fisktćknir

  • Fréttir
  • 26. júní 2013

Fisktækniskóli Íslandsbýður upp á fjölbreytt nám í sjávarútvegi á framhaldsskólastigi. Námið er hagnýtt tveggja ára nám sem er byggt upp sem önnur hver önn í skóla og hin á vinnustað. Nemendur geta valið sér námsleiðir í sjómennsku, fiskvinnslu og fiskeldi. Verkefni og vinnustaðir eru valdir með hliðsjón af áhuga hvers og eins.

  • Fiskvinnslulína:Nemendur læra um meðferð fisks, gæðakerfi, um vélar (td. Baader, Marel) og tæki og búnað sem notaður er til að hámarka gæði og verðmæti fisks. Námið gefur mögleika á fjölbreyttum atvinnutækifærum í vaxandi sjávarútvegi.
  • Sjómennskulína: Nemendur læra m.a. vélavörslu, aflameðferð, veiðitækni, sjóvinnu og rekstur. Námið er tilvalið fyrir þá sem stefna á strandveiði eða huga að öðrum störfum á sjó.
  • Fiskeldislína: Nemendur sérhæfa sig til almennra starfa í fiskeldi eða búa sig undir frekara nám hérlendis eða við samstarfsskóla okkar m.a., í Noregi.

Spennandi blanda bóklegs og verklegs náms.  

Hver námsbraut tekur fjórar annir. Vinnustaðanám fer fram á annarri og fjórðu önn og er um 14 vikur hvor. Tvær fyrstu annir námsins eru sameiginlegar öllum brautunum þremur. Nám á fyrstu önn fer fram í skóla en á annarri önn, á vinnustað. Á þriðju önn eykst sérhæfing og á fjórðu önn stunda nemendur nám á vinnustað í samræmi við framtíðaráform sín um starfsvettvang; í vinnslu, til sjós eða í fiskeldi.

Netagerðin er þriggja ára samningsbundið nám og tvær annir í skóla. Samningstíma og námi í skóla þarf að ljúka áður en farið er í sveinspróf. Þá er farið síðar í meistaranám til að öðlast meistararéttindi í greininni. Einnig er hægt að fara í viðbótarnám sem veitir réttindi til að hefja háskólanám.

Nám í skólanum veitir einnig réttindi til frekara náms í öðrum skólum.

Greinar þær sem flokkast undir að vera almennar og á að taka í Sjómennsku, Fiskvinnslu, og fiskeldi eru:

Enska, Íslenska, Stærðfræði, Námstækni og Veiðar, vinnsla og fiskeldi í samfélaginu.

Allar brautir eiga að skila eins eininga námi eða samsvarandi framlagi í íþróttum eða heilbrigðismálum

Skólagjöld 6.000kr
Efnisgjald 15.000kr

Pappírsgjald 2.500kr

Samtals 23.500kr


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun