Framkvæmdir við nýja reiðhöll hestamannafélagsins Brimfaxa í Hópsheiði eru komnar vel á veg. Þær hófust í febrúar og nú er langt komið með að loka húsinu.
Samkvæmt samkomulagi Grindavíkurbæjar og Brimfaxa leggur bærinn 50 milljónir króna til byggingar reiðhallarinnar. Þessi nýja höll mun bylta starfsemi Brimfaxa. Verktaki er HH smíði.