Jónsmessuganga Bláa Lónsins og Grindavíkur verður haldin laugardaginn 22. júní. Gangan hefst kl. 20.30 og lagt verður af stað frá Sundlaug Grindavíkur. Gengið verður upp á fjallið Þorbjörn þar sem varðeldur verður tendraður. Áætlað er að ferðin taki um tvær og hálfa klukkustund.
Tónlistarmennirnir Gunnar Óla og Hebbi úr Skítamóral munu sjá um söng og gítarspil á fjallinu. Dagskráin endar í Bláa Lóninu þar sem þátttakendur geta notið Jónsmessunæturinnar í töfrandi umhverfi Bláa Lónsins.
Bláa Lónið verður opið til kl. 24.00 þetta kvöld. Enginn þátttökukostnaður er í gönguna og eru þátttakendur á eigin ábyrgð. Þeim þátttakendum sem vilja njóta Blue Lagoon að göngu lokinni býðst aðgangur á sérverði kr. 3.000,
Sætaferðir verða með Kynnisferðum frá BSÍ kl. 19.30 og SBK frá Reykjanesbæ kl. 20.00. Einnig verður boðið upp á sætaferðir frá Bláa Lóninu til Grindavíkur, Reykjanesbæjar kl. 01.00 og Reykjavíkur kl. 00.30. Sætaferð frá Reykjanesbæ kostar kr. 1.500, og sætaferð frá BSÍ kr. 3.600,- Verðin miðast við ferðir báðar leiðir.
Þess má geta að veðurspáin fyrir gönguna er einstaklega góð