Blústónleikar verða á kaffihúsinu Bryggjunni á laugardagskvöld klukkan 21:00. Hljómsveitin sem mætir kallar sig Síðasti séns en þeir hafa komið áður og gert stormandi lukku. Þetta eru afburða hljóðfæraleikarar og drafandi tilfinningaríkur söngur gerir hljómsveitina stórkostlega.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.