Grindavíkurbær og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hafa ákveðið að gera átak í skráningu hunda og katta í bænum og hvetja grindvíska hunda- og kattaeigendur til að skrá dýr sín. HES býður ókeypis árgjald út árið 2013 á nýskráðum hundum og köttum séu dýrin skráð fyrir 30. júlí 2013.
Hundahald
Samkvæmt samþykkt um hundahald á Suðurnesjum er hundahald almennt bannað að. Bæjarstjórnum er heimilt að veita undanþágu til hundahalds með ákveðnum skilyrðum og sér Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja (HES) um þá framkvæmd.
Meðal skilyrða er að hundurinn sé skráður hjá HES og skal hann merktur með örmerki og merki HES. Sé hundur ekki með appelsínugult merki HES (sjá meðfylgjandi mynd), er hann líklega ekki skráður. Þá skal árlega greiða leyfisgjald fyrir þá hunda sem undanþága er veitt fyrir. Innifalin í skráningargjaldinu er ábyrgðartrygging. Ef fleiri en einn hundur er á sama heimili og í eigu sama einstaklings, greiðist fullt gjald af einum hundi en hálft gjald af öðrum.
Á hundaeigendum hvíla skýrar skyldur til að tryggja öryggi hundsins og annarra íbúa. Hundur skal aldrei ganga laus á almannafæri heldur vera í taumi í fylgd aðila sem hefur fullt vald yfir honum. Barn ætti ekki að vera með hund í taumi sem það ræður ekki við. Hundaeigendum ber að viðhafa fullkomið hreinlæti í meðferð hunda sinna til að draga úr sýkingarhættu, þ.m.t. að fjarlægja hundaskít og láta hreinsa hunda sína af bandormum.
Kattahald
Kattahald er heimilt á Suðurnesjum með ákveðnum skilyrðum. Allir heimiliskettir skulu skráðir og örmerktir hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja gegn greiðslu leyfisgjalds sem innheimt er einu sinni.
Leyfisgjaldið felur ekki í sér ábyrgðartryggingu og því þarf kattareigandi að kaupa ábyrgðartryggingu hjá viðurkenndu vátryggingafyrirtæki. Tryggingin á að standa undir tjóni sem köttur hans kann að valda mönnum og munum. Kattareiganda ber auk þess að láta ormahreinsa kött sinn árlega og gæta þess að hann valdi ekki ama eða tjóni.
Á heilbrigðisnefnd hvílir skylda til að útrýma villi- eða flækingsköttum. Ómerktur köttur sem fangaður er skal geymdur í 7 daga. Hafi kattarins ekki verið vitjað innan þess tíma er heimilt að aflífa hann. Ef eigandi gefur sig fram skal hann greiða leyfisgjald og áfallinn kostnað.
Á vef Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja og bæjarskrifstofunni er hægt að sækja um leyfi fyrir hunda og ketti. www.hes.is
Á vef Grindavíkurbæjar er hægt að nálgast upplýsingar um skráða hunda og ketti í Grindavík www.grindavik.is/dyrahald
Ábendingar um óskráða hunda og ketti eru vel þegnar með því að senda upplýsing-ar á netfangið hes@hes.is. Í sumar munu starfsmenn á vegum Grindavíkurbæjar og HES ganga hús úr húsi og kanna hvort skráin sé uppfærð.
Listi yfir skráða hunda í Grindavík (skráðir 1. júní 2013)
Listi yfir skráða ketti í Grindavík (skráðir 1. júní 2013)