„Við erum á leiðinni upp þennan stiga, að vinna seinni helminginn af þorskinum," segir Pétur Hafsteinn
Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík og frumkvöðull fullvinnsluklasans Codlands í Grindavík við Morgunblaðið.
Codland hefur opnað þekkingarsetur í Kvikunni og þar kynntu nýráðnir starfsmenn hugmyndafræði verkefnisins fyrir gestum á sjómanna- og fjölskylduhátíðinni Sjóaranum síkáta um þar síðustu helgi
Sjávarútvegsfyrirtækin Vísir og Þorbjörn í Grindavík standa að Codland í gegn um hausaþurrkunina
Haustak á Reykjanesi, í samvinnu við íslenska sjávarklasann og ýmis fyrirtæki og stofnanir. Verið er að koma upp grunnstarfseminni, 3-4 verksmiðjum til að vinna úr aukaafurðum þorsksins, meðal annars mjöl, lýsi og hráefni í lyf, snyrtivörur og bragðefni. Sú fyrsta hefur tekið til starfa og verið er að setja tvær til viðbótar upp.
I þekkingarsetri fyrirtækisins í Kvikunni munu í sumar verða fimm til sjö starfsmenn, fólk sem lokið hefur
námi eða er langt komið. Verkefnið er að kortleggja möguleikana og næstu skref. Meðal annars verður
unnið að markaðsmálum og athugað með grundvöll byggingar pökkunarverksmiðju hér á landi. Þá er vonast til að nýjar hugmyndir kvikni í þessu starfi.
„Með haustinu verðum við komin með skýra mynd af því hvenær verksmiðjurnar
taka til starfa og hver verða næstu skrefin í uppbyggingunni," segir Pétur
Mynd: Codland kynnir starfsemi sína á Sjóaranum síkáta.