Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir hefur vísiterað söfnuði í Kjalarnessprófastsdæmi að undanförnu. Biskup var í Grindavík föstudaginn 7. júní og sunnudaginn 9. júní.
Agnes kom víða við í Grindavík, heimsótti leikskóla og Víðihlíð og þá var messa í gær þar sem biskupinn predikaði og sr. Elínborg Gísladóttir þjónaði fyrir altari.
Hér má sjá nokkrar myndir frá heimsókn biskups sem Sólný Pálsdóttir tók.