Keppnin sterkasti maður á Íslandi fór fram í Grindavík um helgina á Sjóaranum síkáta. Alls kepptu sjö kraftakögglar í átta keppnisgreinum. Ari Gunnarsson vann mótið af nokkru öryggi en hann var efstur í sex greinum af átta og var því Sterkasti maður á Íslandi í fyrsta sinn. Sjónvarpsfrétt RÚV um keppnina má sjá hér (er eftir ca. 11 mín).
Ari sigraði risahjólböruakstur, sirkushandlóð, trukkadrátt, dekk yfir rá, drumbalyftu og Atlassteina. Í öðru sæti var Páll Logason sem vann réttstöðulyftuna og var sá eini sem kláraði allar þyngdir eða 360 kg. Ari varð í þriðja til fjórða sæti í réttstöðunni með 320 kg og var það eina greinin þar sem Palli vann stig á Ara. Þriðji var Andri Björnsson en Andri sigraði eina grein, hinn andstyggilega, óheppilega og óvægna bryggjupollaburð. Andri rölti með pollann 43,7 metra, rúmum metra lengra en Ari sem var annar í þeirri grein.
Lokastaða keppenda:
Ari Gunnarsson 52,5 stig
Páll Logason 45,5 stig
Andri Björnsson 40 stig
Úlfur Orri Pétursson 32,5
Daníel Gerena 21,5 stig
Skúli Ármannsson 21,5 stig
Birgir Guðnason 10,5 stig
Sjónvarpsþáttur um mótið verður sýndur á RÚV.