Vélstjóra- og sjómannafélag Grindavíkur var með hátíðardagskrá við Kvikuna í tilefni Sjómannadagsins að vanda. Þar fengu þrír sjómenn heiðursviðurkenningar félagsins en þeir eiga það sameiginlegt að hafa róið saman um tíma, þeir Daníel Jónsson, Ingólfur Júlíusson og Erling Kristjánsson.
Veitt voru verðlaun fyrir kappróður, þá flutti Karlakór Keflavíkur nokkur lög og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur kom einnig færandi hendi.
Efsta mynd: Viðar Geirsson frá Sjómanna- og vélstjórafélaginu, Nanna Bára Maríasdóttir frá Fisktækniskólanum sem kynnti verðlaunahafana, Daníel Jónsson og eiginkona hans Birna Bjarnadóttir, Ingólfur Júlíusson og eiginkona hans Rún Pétursdóttir, Erling Kristjánsson og dætur hans Sigríður Inga og Fanný Erlingsdætur en Sigríður Inga kom gagngert frá Noregi til þess að vera viðstödd afhendinguna.
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur færði Björgunarsveitinni Þorbirni glænýja flotgalla að gjöf sem koma sér vel við björgunarstörf í framtíðinni.
Karlakór Keflavíkur söng nokkur lög.
Nemendur Fisktækniskólans unnu róðrakeppni landsveita í fjórða sinn.
Stelpurnar í Vísi unnu róðrakeppnina enn eitt árið!
Áhöfnin á Hrafni Sveinbjarnar vann róðrakeppni sjósveita. Hilmar Helgason skipstjóri mætti til að taka við verðlaununum.
Theódór Vilbergsson, annar frá vinstri, vann Íslandsmeistarakeppnina í netaviðgerðum en þessi keppni er í umsjá Fisktækniskólans og Veiðafæraþjónustunnar í Grindavík.
Appelsínugula hverfið vann róðrakeppni litahverfanna.