Íslandsmót í Kasínu var haldið í Northern Light Inn á laugardaginn en mótið er árlegur viðburður í tengslum við Sjóarann síkáta.
Keppnin var æsispennandi en á endanum var það Valur (Valli) Ólafsson sem bar sigur úr bítum í úrslitaleiknum á klóku bragði! Hann spilaði við Aðalheiði Örnu Björgvinsdóttur í úrslitaleiknum en þess má geta að hún og Pétur unnusti hennar komu sérstaklega til Grindavíkur til að taka þátt í þessari stórskemmtilegu keppni.
Valur er vel að þessum sigri kominn og var aldrei í vafa um að hann myndi sigra þessa keppni enda með gríðarlega reynslu í Kasínu og söng „Íslandsmeistari, Íslandsmeistari" þegar hann landaði sigrinum.
Kasínuþátttakendur þakka Northern Light Inn fyrir aðstöðu og verðlaunin og hlakka til að sjá keppendur að ári liðnu.