Ný grindvísk unglingahljómsveit sem ber nafnið Why so delicious hitaði upp fyrir Skálmöld á tónleikum þeirra síðarnefndu hljómsveitar og vakti athygli fyrir þétta og flotta spilamennsku. Í sveitinni eru þeir Guðjón Sveinsson, Kristinn Freyr Óskarsson, Jón Bergmann Jakobsson og Stefán Steinarsson söngvari.