Þar sem einn úr kennarahópnum er farinn á þing leitum að nýjum samstarfsmanni. Við leitum að fjölhæfum starfsmanni sem getur kennt skipstjórn smáskipa og/eða vélavörslu ásamt því að vinna að ýmsum þróunarverkefnum. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af kennslu og úr sjávarútvegi.
Fisktækniskóli Íslands er lítill vaxandi skóli á sviði sjávarútvegs þar sem lagt er mikið upp úr hagnýtu starfsnámi í miklu samstarfi við fyrirtæki í greininni.
Nánari upplýsingar veiti Ólafur Jón olijon@fiskt.is
Umsóknarfrestur til 15. júní 2013