Á íþróttarás (aukarás) RÚV hefur undanfarna daga verið sýndur þátturinn um Sterkasta mann á Íslandi 2012 en keppnin var haldin á Sjóaranum síkáta í fyrra. Mikið var um spennu og gríðarleg átök en Hafþór Júlíus Björnsson stóð uppi sem sigurvegari. RÚV var sem fyrr á staðnum og gerði þátt um mótið og má sjá hann með því að smella hér.
Keppnin um Sterkasta mann á Íslandi verður aftur á Sjóaranum síkáta í ár.